Ari gefur kost á sér hjá VG

Ari Matthíasson stækka

Ari Matthíasson

Ari Matthíasson leikari og áður framkvæmdastjóri hjá SÁÁ gefur kost á sér í 2. sæti á lista VG í Reykjavík.  Ari er lærður leikari frá Leiklistarskóla Íslands, með  meistaragráðu í stjórnun og viðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík, er með skipsstjórnarréttindi og er í meistaranámi í hagfræði í Háskóla Íslands.

„Ég hef starfað sem togarasjómaður, leikið, leikstýrt og framleitt, starfað við markaðsstörf og ráðgjöf og verið stjórnandi í heilbrigðisstofnun. Ég tel að þessi fjölbreytta menntun og starfsreynsla muni nýtast vel í því mikilvæga uppbyggingarstarfi sem framundan er á Íslandi.

Mikilvægustu verkefni okkar Íslendinga á næstunni snúa að því að slá skjaldborg um velferðarkerfið og að tryggja fjárhagslegt öryggi heimilanna. Það verður einungis gert með auknum jöfnuði og félagshyggju. Á tímum samdráttar og niðurskurðar er hætt við því að hinir atvinnulausu og þeir sem standa á einhvern hátt höllum fæti þurfi á öflugum málsvara að halda. Ég býð mig fram til þess.

Munum að kaupmáttur og lífskjör á Íslandi voru um síðustu aldamót með því besta sem gerist í heiminum og engin ástæða er til að efast um að svo geti orðið að nýju. Til þess þarf að lágmarka tjón okkar af óreiðumönnunum og koma illa fengnum auði aftur inn í velferðarkerfið.

Ég hef gengt trúnaðarstörfum í íþróttahreyfingunni og stéttarfélagi leikara og verið í forystusveit áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann.  Ég er giftur Gígju Tryggvadóttur tannfræðingi og við eigum þrjú börn á aldrinum 10-21 árs," að því er segir í tilkynningu frá Ara.

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is