18 í prófkjöri Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi

Alls gefa 18 kost á sér fyrir prófkjör Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út klukkan 17 í dag. Kjörfundur verður laugardaginn 7. mars. Sjö konur gefa kost á sér og 11 karlar. Sex falast eftir fyrsta sætinu.

Eftirtaldir einstaklingar buðu sig fram:
•   Aðalbjörn Björnsson, skólastjóri, 53 ára, Vopnafirði, sækist eftir 4.-5. sæti
•   Agnes Arnardóttir, atvinnurekandi, 47 ára, Akureyri, sækist eftir 1.-2. sæti
•   Benedikt Sigurðarson, framkvæmdarstjóri, 56 ára, Akureyri, sækist eftir 1.-6. sæti
•   Einar Már Sigurðarson, alþingismaður, 57 ára, Neskaupsstað, sækist  eftir 2. sæti
•   Gísli Baldvinsson, náms og starfsráðgjafi, 61 árs, Akureyri, sækist eftir 4.-6. sæti
•   Guðrún Katrín Árnadóttir, sérkennari, 51 árs, Seyðisfirði, sækist eftir 2.-4. sæti
•   Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur, 41 árs, Akureyri, sækist eftir 3.-4. sæti
•   Herdís Björk Brynjarsdóttir, nemi/verkakona, 25 ára, Dalvík, sækist eftir 3.-4. sæti
•   Jónas Abel Mellado, afgreiðslumaður, 21 árs, Akureyri, sækist eftir 3.-4.sæti
•   Jónína Rós Guðmundsdóttir, framhaldsskólakennari og formaður bæjarráðs í Fljótdalshéraði, 50 ára, Egilsstöðum, sækist eftir 1.-2. sæti.
•   Kristján L. Möller, samgönguráðherra, 55 ára, Siglufirði, sækist eftir 1. sæti
•   Óðinn Svan Geirsson, verslunarstjóri, 48 ára, Akureyri, sækist eftir 1.-8. sæti
•   Logi Már Einarsson, arkitekt, 44 ára, Akureyri, sækist eftir 3. sæti
•   Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur, 47 ára, Reykjavík, sækist eftir 2. sæti
•   Stefanía G. Kristinsdóttir, framkvæmdarstjóri, 39 ára, Egilsstöðum, sækist eftir 2.-4. sæti
•   Svala Jónsdóttir, sviðsstjóri, 42 ára, Akureyri, sækist eftir 3.-5. sæti
•   Þorlákur Axel Jónsson, framhaldsskólakennari, 45 ára, Akureyri, sækist eftir 3.-4. sæti
•   Örlygur Hnefill Jónsson, lögmaður og formaður Byggðastofnunar, 55 ára , Þingeyjarsveit, sækist eftir 1.-4. sæti

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is