Sækist eftir 3. sæti í NV-kjördæmi
Þórður Már Jónsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Þórður Már er 35 ára og stundar meistaranám í lögfræði við Háskólann á Bifröst.
Þórður Már segir að nú sé tími endurreisnar og endurnýjunar og uppi sé hávær krafa um endurnýjun á Alþingi.
„Þörfin fyrir kraftmikið ungt fólk með nýjar hugmyndir og ákefð til að ná settum markmiðum hefur sjaldan verið meiri. Krafan er jafnframt að héðan í frá vinni alþingismenn eingöngu í þágu fólksins í landinu, en ekki í sína eigin. Krafan er að við endurheimtum hið gamla Ísland, land sem er laust við græðgis- og eiginhagsmunavæðingu spillingarafla. Þessu kalli verðum við að svara,“ segir í yfirlýsingu Þórðar Más Jónssonar.
|
|
Yfirlýsing Þórðar Más Jónssonar |






