Þrjú vilja fyrsta sætið

Eygló Harðardóttir, alþingismaður, sem er fremst á myndinni, er ein þriggja sem falast eftir fyrsta ... stækka

Eygló Harðardóttir, alþingismaður, sem er fremst á myndinni, er ein þriggja sem falast eftir fyrsta sætinu á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. mbl.is/Kristinn

Þrír frambjóðendur falast eftir fyrsta sætinu á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi.

Það eru 13 sem bjóða sig fram í póstkosningu félagsmanna við val í 6 efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna alþingiskosninganna 25. apríl 2009. Frestur til að skila inn framboðum, rann út í gær, 20. febrúar.



Í hópnum eru 7 konur og 6 karlar og er yngsti frambjóðandinn 18 ára en sá elsti er 65 ára.
 
Eftirtaldir gefa kost á sér:
 
1. sæti:            Eygló Þóra Harðardóttir, alþingismaður
                        Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir
1. – 2. sæti:     Birgir Þórarinsson, sérfr. í alþj.samskiptum
                        Kristinn Rúnar Hartmannsson, myndlistamaður
1. – 3. sæti:     Eysteinn Jónsson, bæjarfulltrúi
2. sæti:            Bryndís Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur og form. SUF
3. – 6. sæti:     Inga Þyri Kjartansdóttir, verkefnastjóri
4. sæti:            Guðni Ragnarsson, bóndi
5. – 6. sæti:     Einar Freyr Elínarson, nemi
                        Ásthildur Ýr Gísladóttir, nemi og vaktstjóri
                        Bergrún Björnsdóttir, nemi
6. sæti:            Hansína Ásta Björgvinsdóttir, kennari
                        Ingibjörg Júlía Þorbergsdóttir, viðskiptafræðingur
 
 
Kosið verður í póstkosningu allra flokksmanna í kjördæminu. Kjörfundur hefst 24. febrúar og honum lýkur 4. mars. Framboðslistinn í heild verður svo lagður fyrir aukakjördæmisþing 8. mars n.k. á Hótel Selfossi.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is