Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 21.2.2009
| 18:30
VG seinkar forvali í Kraganum
Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi ákvað á fundi sínum í dag að kjörfundur vegna forvals verði laugardaginn 14. mars 2009 en ekki dagana 5. og 6. mars eins og áður hefur verið auglýst.
Framboðsfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 26. febrúar. Þeir sem vilja gefa kost á sér skulu senda til kjörstsjórnar á netfangið kjorstjornvgsv@gmail.com
Þeir sem vilja stinga upp á frambjóðanda geri það með sama hætti og mun kjörstjórn þá leita eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á.
„Allir þeir sem hafa áhuga á því að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuði, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvattir til að gefa kost á sér,“ segir í tilkynningu kjörstjórnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






