Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 24.2.2009
| 16:32
Gefur kost á sér í 5.-6. sæti hjá Samfylkingu í NV-kjördæmi
Ólafur Ingi Guðmundsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5.- 6. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Hann er fæddur 30. mars 1981 og hefur verið búsettur á Akranesi nær alla tíð.
Ólafur Ingi útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi árið 2001, hóf nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands sama ár og lauk BA-prófi í stjórnmálafræði árið 2004. Síðan þá hefur hann lagt stund á frekara nám, er útskrifaður grunn- og framhaldsskólakennari og með MA-próf í kennslufræði. Hann er nú að leggja lokahönd á meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.
„Meðal landsmanna hafa verið háværar kröfur um endurnýjun í samfélaginu og breyttar áherslur á grunngildum okkar. Eftir 18 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins þar sem nýfrjálshyggjan hefur lengstum verið áberandi er kominn tími á nýjar og ferskar hugmyndir um uppbyggingu og þróun samfélagsins. Sóknarfærin eru mörg og nú er tækifæri Samfylkingarinnar til þess að koma á framfæri og berjast fyrir grunngildum sínum, félagshyggju, kvenfrelsi, jafnrétti og samábyrgð,“ segir Ólafur Ingi m.a. í tilkynningu um framboðið og segir ennfremur: „Ég vil leggja mitt af mörkum til að rödd kjósenda Norðvesturkjördæmis heyrist skýrt og greinilega á Alþingi.“

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin