„Nú fer ég að líta í kringum mig“

„Ég veit ekki hvað tekur við að lokinni þingmennsku. Það er ekkert fast í hendi þannig að nú verð ég að fara að líta í kringum mig,“ segir Árni M. Mathiesen, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og fyrrverandi fjármálaráðherra. Árni hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í næsta mánuði.

Árni staðfesti í samtali við Morgunblaðið 8. febrúar að hann sæktist áfram eftir setu á Alþingi í kosningunum 25. apríl næstkomandi en nú rúmlega hálfum mánuði síðar og eftir yfirreið um kjördæmið, hefur hann skipt um skoðun.

„Ég hef fundið glöggt að fólk vill breytingar, bæði á okkar áherslum og eins á okkar frambjóðendum. Það lá fyrir að nær allir sitjandi þingmenn sækjast eftir endurkjöri og þá er erfitt að sjá hvernig breytingum verður komið við,“ segir Árni.

Hann segir þetta enga skyndiákvörðun og síst hafi hann verið orðinn leiður á pólitík.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is