Ellefu í prófkjöri Samfylkingar í NV-kjördæmi

mbl.is

Ellefu manns hafa gefið kost á sér í prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar vorið 2009. Prófkjörið verður rafrænt og hefst á hádegi föstudaginn 6. mars og líkur kl. 16 sunnudaginn 8. mars.  Vonast er til að niðurstöður prófkjörsins liggi fyrir um kl. 18 sama dag, segir í tilkynningu stjórnar kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.

Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa allir félagar í Samfylkingunni í Norðvesturkjördæmi sem eru kjörgengir í kjördæminu. Við röðun á lista verður parað í 6 efstu sætin, þannig að ávallt verði karl og kona í hverjum tveimur sætum, raðað eftir atkvæðamagni í prófkjöri. Fram kemur að
frambjóðendum er óheimilt að auglýsa í ljósvaka- , prent- og vefmiðlum. Allar nánari upplýsingar verður að finna á www.xsnv.blog.is  og í  kynningarriti sem dreift verður í öll hús í kjördæminu.


Frambjóðendur eru:


Anna Kristín Gunnarsdóttir , varaþingmaður  Sauðárkróki
2. sæti

Arna Lára Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og bæjarfulltrúi  Ísafirði.
2.-3. Sæti

Ásdís Sigtryggsdóttir, vaktstjóri Akranesi.
4.-6. Sæti

Einar Benediktsson, verkamaður  Akranesi
3.-6. Sæti

Guðbjartur Hannesson, alþingismaður Akranesi
1. sæti

Hulda Skúladóttir, kennslu- og námsráðgjafi Snæfellsbæ
5.-6.  sæti

Karl V. Matthíasson, alþingismaður Miðhrauni II í Miklaholtshreppi
1.-2. Sæti

Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur Ísafirði
1.-2. Sæti

Ólafur Ingi Guðmundsson, stjórnmálafræðingur Akranesi
5.-6. Sæti

Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggð
2.-3. Sæti

Þórður Már Jónsson, viðskiptalögfræðingur Bifröst
3. sæti


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is