Frjálslyndir undirbúa framboð

Frjálslyndi flokkurinn hefur ekki gengið formlega frá neinum framboðslistum en unnið er af kappi að undirbúningi framboða, skv. upplýsingum Magnúsar Reynis Guðmundssonar framkvæmdastjóra flokksins.

Framboðsmál eru að skýrast í Suðurkjördæmi, Suðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi og póstkosning að fara í gang í Norðvesturkjördæmi. Þar verður kosið um 5 sæti. Guðjón Arnar Kristjánsson formaður gefur kost á sér í 1. sæti en meðal þeirra sem gefa kost á sér, skv. upplýsingum Magnúsar, eru Sigurjón Þórðarson fv. þingmaður sem býður sig fram í 1. til 5 sæti. og Magnús Þór Hafsteinsson fv. þingmaður og Ragnheiður Ólafsdóttir varaþingmaður sem bjóða sig bæði fram í 2. sætið. Stjórn kjördæmafélagsins í NA-kjördæmi hefur lagt til að Ásta Hafberg skipi 1. sætið og í Suðurkjördæmi er lagt til að Grétar Mar Jónsson þingmaður skipi 1. sætið.

 Undirbúningur er skemmra á veg kominn í Reykjavík. Miklar breytingar eru í forystu flokksins en þingmennirnir Jón Magnússon og Kristinn H. Gunnarsson hafa yfirgefið flokkinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is