Grétar Mar í fyrsta sætinu hjá Frjálslynda flokknum

Grétar Mar Jónsson.
Grétar Mar Jónsson.

Grétar Mar Jónsson, þingmaður, skipar efsta sætið á lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi líkt og fyrir síðustu kosningar. Georg Eiður Arnarsson í Vestmannaeyjum skipar annað sæti listans en skipan sjö efstu sæta listans var samþykkt á fundi stjórnar kjördæmafélags Suðurkjördæmis í dag.


1. sæti, Grétar Mar Jónsson, Sandgerði
2. sæti, Georg Eiður Arnarsson, Vestmannaeyjum
3. sæti, Guðrún María Óskarsdóttir, Hafnarfirði
4. sæti, Margrét Harðardóttir, Selfossi, Árborg
5. sæti, Guðmundur Guðmundsson, Grindavík
6. sæti, Anna Grétarsdóttir, Vestmannaeyjum
7. sæti, Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir, Reykjanesbæ

Gert er ráð fyrir að endanleg skipan listans liggi fyrir á næstu dögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert