Netkosning hafin hjá Samfylkingu í Reykjavík

mbl.is

Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna vals á framboðslista til 
Alþingiskosninga 2009 hefst í dag, mánudaginn 9. mars og lýkur 
laugardaginn 14. mars kl. 18. Kjörið fer fram á netinu, á 
vefsvæði Samfylkingarinnar, samfylking.is og því mögulegt að kjósa 
hvar sem er, svo lengi sem tölva, nettenging og aðgangur að 
heimabanka eru til staðar, segir í frétt frá Samfylkingunni.

Hefðbundinn kjörstaður verður í 
kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. 
Kjörstaðurinn verður opinn 9. - 13. mars kl. 14 - 20 alla dagana. 
Laugardaginn 14. mars verður opið kl. 9 - 18.

Um 8000 félagsmenn eru á kjörskrá en kosningarétt hafa félagar í 
Samfylkingarfélögunum í Reykjavík sem voru skráðir félagar þann 28. 
febrúar 2009 og eiga lögheimili eða hafa kosningarétt í Reykjavík. 
Miðað er við skráð lögheimili í þjóðskrá sunnudaginn 1. mars 2009. 
Framvísa þarf persónuskilríkjum á kjörstað.

Kosið verður um 8 fyrstu sætin á framboðslistum Samfylkingarinnar í 
Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Alls taka 19 frambjóðendur þátt í 
prófkjörinu, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þingmaður og formaður 
Samfylkingarinnar hefur dregið framboð sitt til baka af 
heilsufarsástæðum. Eftirtaldir eru í framboði:

Anna Pála Sverrisdóttir formaður Ungra jafnaðarmanna, Ásta Ragnheiður 
Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra, Björgvin Valur 
Guðmundsson leiðbeinandi, Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi, Helgi 
Hjörvar þingmaður, Hörður J. Oddfríðarson áfengis- og 
vímuefnaráðgjafi og formaður Sundsambands Íslands, Jóhanna 
Sigurðardóttir forsætisráðherra, Jón Daníelsson blaðamaður og 
þýðandi, Jón Baldvin Hannibalsson fyrrv. formaður Alþýðuflokksins, 
Mörður Árnason íslenskufræðingur, Pétur Tyrfingsson sálfræðingur, 
Sigríður Arnardóttir félags- og fjölmiðlafræðingur, Sigríður 
Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur og sagnfræðingur, Sigurbjörg 
Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur og félagsfræðingur, Skúli 
Helgason stjórnmálafræðingur, Steinunn Valdís Óskarsdóttir þingmaður, 
Sverrir Jensson veðurfræðingur, Valgerður Bjarnadóttir sviðsstjóri og 
Össur Skarphéðinsson iðnaðar- og utanríkisráðherra.

Nánari upplýsingar um netkosninguna má finna á vefsvæði 
Samfylkingarinnar, samfylking.is.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is