Listaverk föllnu bankanna verði seld

Kjartan Ólafsson.
Kjartan Ólafsson.

Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi hefur beint þeirri áskorun til forsætisráðherra um að hann beiti sér fyrir sölu á öllum þeim um það bil 4000 listaverkum sem voru í eigu í eigu hinna föllnu banka. Telst þingmanninum til að með þessum hætti geti þjóðarbúið fengið fjóra til átta  milljarða króna. Í áskorun sinni segir Kjartan:

„Á þessum þrengingatímum þurfum við að leita allra skynsamlegra leiða til að afla fjármagns svo ríkisvaldið geti komið til bjargar fólki og fyrirtækjum í landinu. Nægir þar ekki að horfa eingöngu til hefðbundinna tekjustofna heldur verðum við jafnframt að leita nýrra leiða.

Í því augnamiði skora ég á þig að beita þér í því að láta selja öll þau um það bil 4.000 listaverk sem voru í eigu föllnu bankanna en eru nú í eigu ríkisins; fólksins í landinu. Þjóðin þarf á þeim fjármunum að halda sem falin eru í þessum listaverkum. Hugsanlega mætti selja þessi verk á opnum uppboðum, sem haldin yrðu með reglulegu millibili næstu misserin, eða með öðrum hætti með það að markmiði að hámarka söluandvirði verkanna.

Við eftirgrennslan mína hef ég komist að því að líklega er ekkert þessa verka undir einni milljón króna að verðmæti og mörg sem verðmetin hafa verið á marga tugi milljóna króna. Lauslega áætlað sýnist mér að með þessum hætti geti þjóðarbúið fengið fjóra til átta milljarða króna og það eru miklir fjármunir þegar litlu er til að dreifa.

Það sem skiptir svo ekki minna máli er að þarna er ekki um að ræða fjármuni sem færðir eru frá einni stofnun til annarrar eða aflað með niðurskurði á þjónustu hins opinbera eða lækkun launa. Þetta eru vannýttir fjármunir sem liggja að mestu í geymslum og eru þar þjóðinni til lítils yndisauka. Við höfum ekki efni á öðru en nýta þessa fjármuni eins og málum er nú háttað hjá íslensku þjóðinni. Eðlileg forgangsröðun, í þeirri erfiðu stöðu sem við nú erum, hlýtur að miðast að því að halda bönkunum opnum, og að þeir geti veitt almenningi og fyrirtækjum eðlilega þjónustu, frekar en bankarnir safni málverkum á veggi og í geymslur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert