Karl V. til liðs við Frjálslynda

Karl V. Matthíasson
Karl V. Matthíasson Friðrik Tryggvason

Karl V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn. Segir í tilkynningu frá Karli að ákvörðun þessi helgist af því að skoðanir hans og hugsjónir um sjávarútvegsmál á Íslandi eiga ríkan hljómgrunn í Frjálslynda flokknum. 

Karl V. var færður upp í fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi í prófkjöri sem þar fór fram um síðustu helgi. Var það gert vegna kynjakvóta en hann hafnaði neðar í prófkjörinu. Fyrir síðustu alþingiskosningar skipaði Karl annað sætið á lista Samfylkingarinnar á NV-kjördæmi.

„Viðhorf mín á þessu sviði hafa ekki skipað þann sess innan Samfylkingarinnar sem ég hefði kosið á undanförnum tveimur árum, sem kom vel í ljós í niðurstöðum prófkjörs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir skömmu.
 
Ein meginástæða þess að ég hóf þátttöku í stjórnmálum er löngun mín til að stuðla að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins sem að mínu mati er með eindæmum ranglátt og felur í sér mikla mismunun.  Það hefur ekki síst komið í ljós eftir að efnahagskreppan skall á Íslandi í október á síðasta ári en ég er þeirrar skoðunar að fyrirkomulag þessa kerfis eigi stóran þátt í þeim vanda sem þjóðin glímir nú við. Því verður eitt  mikilvægasta verkefni í endurreisn landsins að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu á þann veg að arður þessarar dýrmætustu náttúruauðlindar landsins komi þjóðinni allri til góða. og skapi um leið fleiri atvinnutækifæri.
 
Frjálslyndi flokkurinn hefur ávallt sett þessi mál í öndvegi.  Ég hef því ákveðið að ganga til liðs við flokkinn og hlakka ég til að eiga gott samstarf við félaga hans.
 
Á þessum tímamótum vil ég nota tækifærið til að þakka kærum vinum mínum í Samfylkingunni  samstarfið á undanförnum árum og óska þeim alls hins besta," að því er segir í yfirlýsingu frá Karli V. Matthíassyni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert