Stuðningsmenn Guðlaugs segja hann hafa forystu

Guðlaugur Þór Þórðarson stækka

Guðlaugur Þór Þórðarson Ómar Óskarsson

Guðlaugur Þór Þórðarson leiðir í prófkjörsslagnum hjá Sjálfstæðisflokkunum í Reykjavík samkvæmt könnun sem gerð hefur verið á fylgi þeirra sem sækjast eftir 1. sætinu. 45% þeirra sem hringt var í sögðust ætla að kjósa Guðlaug Þór en 35% nefna Illuga Gunnarsson. Um fimmtungur tók ekki afstöðu eða nefnir önnur nöfn í fyrsta sætið. Könnunin var framkvæmd fyrir stuðningsmenn Guðlaugs Þórs af úthringihóp á vegum framboðs Guðlaugs Þórs.

Í tilkynningu kemur fram að hringt var í 3661 sjálfstæðismann í Reykjavík 16 ára og eldri dagana 9. til 12. mars. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu til þeirra tveggja sem hafa boðið sig fram í 1. sætið hyggjast 56% styðja Guðlaug en 44% Illuga, að því er fram kemur í tilkynningu.

Samkvæmt könnun sem Capacent Gallup vann og greint var frá í Morgunblaðinu þann 21. febrúar sl. naut Illugi Gunnarsson stuðnings 20,8% til 30% Reykvíkinga til að leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík og Guðlaugur Þór Þórðarson á bilinu 5,2% til 10,2% stuðnings.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is