Vilja 1. og 2. sæti hjá VG í SV-kjördæmi

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

Forval VG í Suðvesturkjördæmi fer fram í dag laugardaginn 14. mars kl. 10-22 og hægt er að kjósa að Hamraborg 1-3 í Kópavogi, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og í Hlégarði í Mosfellsbæ. Kosningavaka verður haldin í Fjörukránni í Hafnarfirði kl. 22-01 í kvöld (laugardag) og er öllum opin, að því fram kemur í tilkynningu.

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir býður sig fram í 1. sæti í forvali VG í Suðvesturkjördæmi sem fram fer í dag. Guðfríður Lilja er með B.A.-próf í sagnfræði frá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og mastersgráðu í heimspeki frá Cambridge-háskóla í Bretlandi. Hún bjó erlendis í níu ár og starfaði víða í Evrópu, m.a. að innflytjendamálum, en vinnur núna sem framkvæmdastýra þingflokks Vinstri grænna.
 
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra býður sig fram í 2. sæti í forvali VG í Suðvesturkjördæmi. Ögmundur er með M.A.-próf í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi. Hann hefur látið til sín taka í stjórnmálum og á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar innan lands sem utan um langt árabil.
 


Ögmundur Jónasson.

Ögmundur Jónasson. mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is