Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 14.3.2009
| 21:14
| Uppfært
22:58
Spennandi barátta um 3. - 6. sæti í Kraganum
Nú hafa verið talin 2800 atkvæði í Suðvesturkjördæmi, eða sléttur helmingur atkvæða. Bjarni Benediktsson er sem fyrr efstur, en hann hefur fengið 1748 atkvæði í fyrsta sætið. Þorgerður Katrín er í öðru sæti. Ragnheiður Ríkharðsdóttir heldur þriðja sætinu, Jón Gunnarsson því fjórða, Óli Björn Kárason fimmta og Ármann Kr. Ólafsson er í sjötta sætinu.
Sjá nánar hér.
Í Suðvesturkjördæmi kusu 5.609 í prófkjörinu í dag en 6.409 þegar
prófkjör fór fram síðast í nóvember 2006. Alls voru um 13 þúsund á
kjörskrá fyrir prófkjörið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






