Jóhanna býður sig fram til formanns

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir mbl.is/Ómar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Samfylkingunni. Hún tilkynnti ákvörðun sína rétt í þessu.

„Í ljósi niðurstöðu prófkjörsins í Reykjavík 14. mars síðastliðinn og þeirrar miklu hvatningar og eindregnu óska sem ég hef fengið frá félögum mínum um land allt hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins 27. – 29. mars næstkomandi. Ég er afar þakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt og vil ekki skorast undan því að leggja mitt af mörkum við að leiða flokkinn í einum mikilvægustu kosningum í sögu lýðveldisins,“ segir í tilkynningu frá Jóhönnu Sigurðardóttur.

Það segir ennfremur: „Við jafnaðarmenn fengum það hlutskipti að leiða vinstristjórn eftir einhver harkalegustu áföll sem íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir. Verkefnið er hins vegar rétt að hefjast. Brýnt er að því verði fylgt eftir af festu og að við stjórn landsins fari saman ábyrg efnahagsstjórn og félagslegar áherslur. Því tel ég áríðandi að Samfylkingin gegni áfram lykilhlutverki í endurreisnarstarfinu, með jafnræði og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.

Á þeim viðsjárverðu tímum sem nú eru á Íslandi er nauðsynlegt að allir leggi hönd á plóg og sem forsætisráðherra get ég ekki gert minni kröfur til sjálfrar mín en annarra í þeim efnum. Með framboði mínu til formanns Samfylkingarinnar lýsi ég yfir að ég er reiðubúin að leiða flokkinn og ríkisstjórn undir hans forystu í því veigamikla uppbyggingarstarfi sem nú er hafið.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert