Björk ekki á lista

Björk Guðjónsdóttir við athöfn í Reykjanesbæ. stækka

Björk Guðjónsdóttir við athöfn í Reykjanesbæ. Helgi Bjarnason

Björk Guðjónsdóttir, einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, gefur ekki kost á sér á framboðslistann en hún hafnaði í 6. sæti í prófkjöri á dögunum. Framboðslistinn var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í dag.

Bindandi kosning varð í fjögur efstu sætin. Þau skipa Ragnheiður Elín Árnadóttir þingmaður, Árni Johnsen þingmaður, Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri á Hvolsvelli og Íris Róbertsdóttir kennari í Vestmannaeyjum.

Kjartan Ólafsson þingmaður féll í prófkjörinu úr öðru sæti í það fimmta og Björk Guðjónsdóttir varð í sjötta sæti en síðast skipaði hún fjórða sæti listans.

Sigurður Valur Ásbjarnarson, formaður kjördæmisráðsins, segir að Björk hafi ákveðið að gefa ekki kost á sér í sjötta sætið. Kjörstjórn hafi því ákveðið að raða listanum upp á nýtt, frá og með fimmta sæti. Kjartan þáði boð um að halda fimmta sætinu. Í sjötta sætinu verður Vilhjálmur Árnason úr Grindavík en hann hafnaði neðar í prófkjörinu. Grímur Gíslason sem varð í sjöunda sæti gaf ekki kost á sér í það sæti þegar fyrir lá að kjörstjórn myndi færa Vilhjálm upp í sjötta sætið. Ari Thorarensen fangavörður úr Sveitarfélaginu Árborg verður í því sæti.

Kjördæmisráð samþykkti listann á fundi á Selfossi í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is