Kristján Þór tilkynnir um framboðsáform

Þorgerður Katrín og Kristján Þór Júlíusson á landsfundinum hausið 2005 þegar þau kepptu um varaformanninn. stækka

Þorgerður Katrín og Kristján Þór Júlíusson á landsfundinum hausið 2005 þegar þau kepptu um varaformanninn. Kristján Kristjánsson

Kristján Þór Júlíusson alþingismaður og oddviti sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi hefur boðað til blaðamannafundar kl. 16,15 í Vaðlaheiði á útsýnispalli gegnt Akureyri þar sem hann mun kynna áform sín í forystukjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer á landsfundi flokksins þann 29. mars nk.

Í fundarboðinu segir jafnframt að Kristján Þór muni jafnframt kynna meginforsendur ákvörðunar sinnar á fundinum. „Sjálfstæðisflokkurinn er breiður flokkur með sterka lýðræðishefð og því eðlilegt að flokksmenn geti valið milli mismunandi kosta við kjör forystu. Þar á enginn að eiga neitt gefið“, segir í fundarboðinu frá Kristjáni Þór.

Kristján Þór atti kappi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á  landsfundi Sjálfstæðisflokksins haustið 2005 en þá hafði Þorgerður betur, hlaut 62,3% í varaformannskjörinu en Kristján Þór hlaut 36,3% atkvæða. Af fundarboði Kristjáns nú verður ekki ráðið hvor hann hyggst aftur bjóða sig fram í varaformanninn þar sem Þorgerður Katrín er aftur í framboði eða í formanninn þar sem Bjarni Benediktsson hefur gefið kost á sér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is