Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 23.3.2009
| 13:42
Drífa Snædal um Smuguna: Lýtur ekki ritstjórnarvaldi VG
Drífa Snædal Ragnar Axelsson
Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri grænna, segir að ekki sé rétt haft eftir henni af landsfundi Vinstri grænna í frétt á mbl.is frá því á föstudag. Hún hafi ekki sagt að Smugan lyti ritstjórnarvaldi VG heldur hafi hún fagnað því að ritstjórnarstefna jafn öflugs vefmiðils og Smugunnar sé í takt við stefnu Vinstri grænna.
Drífa kynnti skýrslu stjórnar VG á landsfundinum á föstudag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






