Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 24.3.2009
| 18:04
D-listar í Reykjavík birtir
Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, samþykkti á fundi sínum í dag framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir kosningarnar 25. apríl nk. en prófkjör flokksins í Reykjavík fór fram dagana 13. og 14. mars sl.
Fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum, að frambjóðendur á listanum komi víða að og hafi ólíka menntun, reynslu og bakgrunn. Yngsti frambjóðandinn sé nýorðinn tvítugur en sá elsti kominn hátt á áttræðisaldur. Kynjahlutföll séu jöfn á báðum listum og séu fimm konur og fimm karlar í efstu tíu sætunum.
Listarnir eru eftirfarandi:
Reykjavíkurkjördæmi norður
- Illugi Gunnarsson, alþingismaður
- Pétur Blöndal, alþingismaður
- Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður
- Ásta Möller, alþingismaður
- Þórlindur Kjartansson, BA í hagfræði
- Jórunn Ósk Frímannsd Jensen, borgarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur
- Guðrún Inga Ingólfsdóttir, hagfræðingur
- Fanney Birna Jónsdóttir, nemi
- Pétur Hafliði Marteinsson, fótboltamaður
- Diljá Mist Einarsdóttir, nemi
- Karólína Snorradóttir, gæslukona
- Sigríður Finsen, hagfræðingur
- Magnús Böðvarsson, múrarameistari
- Erla Margrét Gunnarsdóttir, byggingatæknifræðingur
- John Paul Biscarro, vaktstjóri
- Jóhann Heiðar Jóhannsson, læknir
- Guðlaug Björgvinsdóttir, kennari
- Kári Sölmundarson, sölustjóri sjávarafurða
- Matthildur Skúladóttir, glerlistakona
- Málhildur Angantýsdóttir, sjúkraliði
- Hilmar Guðlaugsson, múrarameistari
- Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra
Reykjavíkurkjördæmi suður
- Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður
- Ólöf Nordal, alþingismaður
- Birgir Ármannsson, alþingismaður
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir , stjórnmálafræðingur
- Sigríður Ásthildur Andersen, lögfræðingur
- Gréta Ingþórsdóttir, MA-nemi og fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra
- Grazyna María Okuniewska, hjúkrunarfræðingur
- Sveinbjörn Brandsson, læknir
- Steingrímur Sigurgeirsson, stjórnsýslufræðingur
- Pjetur Stefánsson, myndlistamaður
- Sigfús Sigurðsson, íþróttamaður
- Þórey Vilhjálmsdóttir, MBA viðskiptafræðingur
- Elinóra Inga Sigurðardóttir, frumkvöðull
- Hafsteinn Gunnar Hauksson, nemi
- Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
- Pétur Ásbjörnsson, bifvélavirki
- Sigríður Hallgrímsdóttir, MBA viðskiptafræðingur
- Gísli Ragnarsson, skólameistari
- Elísabet Ólöf Helgadóttir, tanntæknir
- Jón Magnússon, alþingismaður
- Ríkey Ríkarðsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






