Vilja afgreiða 22 mál

Frá Alþingi.
Frá Alþingi.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að enn væru 22 þingmál, sem ríkisstjórnin vildi afgreiða fyrir þinglok. Þar af væru 12 mál, sem snertu fjármál heimila og fyrirtækja, einkum þó frumvörp um greiðsluaðlögun veðlána. 

Ekki hefur náðst samkomulag um  þinglokin. Jóhanna átti í gær fund með formönnum stjórnmálaflokkanna á Alþingi í gær og sagði að annar slíkur fundur verði haldinn í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert