Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 27.3.2009
| 14:34
| Uppfært
15:06
Framsókn ákveður Reykjavíkurlistana
Framsóknarmenn hafa gengið frá framboðslistum í báðum Reykjavikurkjördæmunum fyrir kosningarnar 25. apríl næstkomandi. Listarnir eru sem hér segir:
Reykjavík norður
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 34 ára, skipulagshagfræðingur
- Ásta Rut Jónasdóttir, 35 ára, stjórnmálafræðingur
- Þórir Ingþórsson, 32 ára, viðskiptafræðingur
- Fanný Gunnarsdóttir, 51 ára, kennari og starfandi námsráðgjafi
- Birna Kristín Svavarsdóttir, 55 ára, hjúkrunarforstjóri
- Edvard Börkur Edvardsson, 42 ára, framkvæmdastjóri
- Auður Þórhallsdóttir, 50 ára, fræðslustjóri
- Jónas Tryggvason, 49 ára, framkvæmdastjóri
- Ella Þóra Jónsdóttir, 33 ára, deildarstjóri
- Gestur Guðjónsson, 36 ára, umhverfisverkfræðingur
- Inga Guðrún Kristjánsdóttir, 30 ára, uppeldis- og menntunarfræðingur
- Guðmundur Halldór Björnsson, 34 ára, markaðssérfræðingur
- Kristín Helga Magnúsdóttir, 19 ára, framhaldsskólanemi
- Sóley Þórmundsdóttir, 50 ára, skrifstofumaður
- Eiríkur Sigurðsson, 38 ára, ráðgjafi
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir, 28 ára, stjórnmálafræðinemi
- Ásgeir Harðarson, 50 ára, framkvæmdastjóri
- Magnús Þór Magnússon, 25 ára, stuðningsfulltrúi
- Ragnhildur Jónasdóttir, 65 ára, flugfjarskiptamaður
- Sæmundur Runólfsson, 53 ára, framkvæmdastjóri UMFÍ
- Sigrún Magnúsdótir, 65 ára, fv. borgarfulltrúi
- Valdimar Kristján Jónsson, 74 ára, prófessor
Reykjavík suður
- Vigdís Hauksdóttir, 44 ára, lögfræðingur
- Einar Skúlason, 37 ára, stjórnmálafræðingur og MBA
- Guðrún Valdimarsdóttir, 36 ára, hagfræðingur
- Salvör Gissurardóttir, 55 ára, viðskiptafræðingur
- Jón Helgi Eiðsson, 52 ára, sölufulltrúi
- Rakel Dögg Óskarsdóttir, 28 ára, líffræðinemi
- Eyjólfur Magnússon Scheving, 67 ára, kennari
- Sandra Harðardóttir, 20 ára, sjúkraliðanem
- Einar Björn Bjarnason, 40 ára, stjórnmála- og Evrópufræðingur
- Sigurþór Friðbertsson, 33 ára, vélvirkjameistari
- Snædís Karlsdóttir, 21 árs, vaktstjóri
- Jón Sigurðsson, 31 árs, þjónustustjóri og háskólanemi
- Valgerður Sveinsdóttir, 37 ára, lyfjafræðingur og markaðsfulltrúi
- Guðmundur Geir Sigurðsson, 51 árs, sölumaður
- Guðrún Eggertsdóttir, 61 árs, yfirljósmóðir
- Rafn Einarsson, 52 ára, húsasmíða- og málarameistari
- Hlín Sigurðardóttir, 62 ára, húsmóðir
- Guðlaugur G. Sverrisson, 48 ára, verkefnastjóri
- Sigrún Sturludóttir, 79 ára, húsmóðir
- Brynjar Fransson, 69 ára, fv. fasteignasali
- Áslaug Brynjólfsdóttir, 76 ára, fv. fræðslustjóri
- Tómas Árnason, 85 ára, fv. ráðherra og seðlabankastjóri
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







