Óvenjulegt að mynstrið haldi
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is
„Það hefðu nú einhvern tímann þótt tíðindi að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mældust samanlagt með 37% fylgi,“ segir Ólafur. Niðurstöður skoðanakannana síðustu vikur endurspegla óvenjulegar aðstæður í íslensku stjórnmálalífi að mati Ólafs. Einna athyglisverðast sé að sjá að nýtt landslag í íslenskum stjórnmálum hafi nú haldist í nokkuð langan tíma, nokkuð sem verði merkilegra með hverri vikunni sem líði.
Enn er allt opið
„Þetta nýja landslag sem við höfum séð undanfarið hefur nú í grófum dráttum haldist óbreytt í 5-6 vikur, þar sem núverandi stjórnarflokkar hafa verið með mjög góðan meirihluta og stuðningur við stjórnarflokkana mælst í kringum tveir þriðju hlutar,“ segir Ólafur.Hann segir einnig athyglisvert að sjá að Frjálslyndi flokkurinn mælist nú í annað skiptið í röð með minna fylgi en Borgarahreyfingin og listi Fullveldissinna.
Ólafur segir þó að enn sé allt opið og margt geti breyst á þeim fjórum vikum sem enn séu til kosninga. Enn sé of snemmt að segja til um endanlegar niðurstöður.
Væru óvenjuleg úrslit
Hann segir að yrðu úrslit kosninganna eins og þessi nýjasta könnun segi til um væri það mjög óvenjulegt „því þetta er svo ólíkt hefðbundnum úrslitum í íslenskum stjórnmálum“, segir Ólafur.Hann segir að sé litið til kosninga síðustu 20-25 árin hafi það stundum gerst á síðasta mánuði kosningabaráttu að flokkar bæti við sig eða tapi allt að 5-10% fylgi. Það séu því breytingar sem gera megi ráð fyrir á komandi vikum. „Það gildir bara áfram að margt getur breyst fram til kosninga,“ segir Ólafur.






