Töf á setningu landsfundar
Nokkur töf er á setningu landsfundar Samfylkingarinnar sem átti að hefjast með ávarpi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur kl.16. Ástæðan er sú að beðið er eftir tilvonandi gestum sem eru fastir í umferðartöf á Reykjanesbrautinni.
Fjölmennasti landsfundur Samfylkingarinnar til þessa er við það að hefjast í Smáranum í Kópavogi. Um 1700 manns hafa skráð þátttöku sína á fundinum, en allt eins er búist við fleiri gestum.
Á landsfundinum er mótuð og samþykkt stefna Samfylkingarinnar fyrir þingkosningarnar 25. apríl. Í dag mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fráfarandi formaður flokksins, setja fundinn. Á eftir fara fram umræður um ályktanir flokksins.
Síðdegis á morgun verðu kjöri nýs formanns og varaformanns lýst. Í framboði eru, eins og kunnugt er, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, til formanns, og Árni Páll Árnason og Dagur B. Eggertsson etja kappi um varaformannssætið.






