Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 29.3.2009
| 15:03
| Uppfært
17:35
„Í pólitík er allt mögulegt“
Nýr formaður verður kjörinn kl. 15. Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson hafa lýst yfir formannsframboði. mbl.is/Ómar
Núna kl. 15 fer fram kjör í embætti formanns, en Kristján og Bjarni Benediktsson hafa lýst yfir framboði. Mikil spenna er í loftinu á landsfundi en bæði Bjarni og Kristján fengu standandi lófaklapp að loknum ræðum sínum í gær. Strax að loknu kjöri formanns verður varaformaður flokksins kjörinn.
Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins mun flytja ræðu kl. 16 að lokinni talningu atkvæða, en rúmlega 1.900 landsfundarfulltrúar eru mættir í Laugardalshöll. Hægt er að fylgjast með landsfundi í beinni útsendingu hér á mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






