Samfylkingin enn stærst, stjórnin missir stuðning

Dagur B. Eggertsson, varaformaður, og Jóhanna Sigurðardóttir, formaður, Samfylkingarinnar. stækka

Dagur B. Eggertsson, varaformaður, og Jóhanna Sigurðardóttir, formaður, Samfylkingarinnar.

Morgunblaðið Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Samfylkingin mælist enn stærst íslenskra stjórnmálaflokka, með 29,4 prósenta fylgi, í Þjóðarpúlsi Capacent Gallup sem kynntur var í gær. Vinstri grænir fylgja enn á hæla hennar með 27,7 prósent. Því hefur dregið saman með stjórnarflokkunum frá síðustu viku, þegar Samfylkingin hafði 30% og Vinstri grænir 26,2%.

Sjálfstæðisflokkurinn er í þriðja sæti með 25,4% og bætir við sig einu prósentustigi. Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar 1,8%, fer úr tólf og hálfu niður í 10,7 prósent.

Fylgi við ný framboð minnkar lítillega

Af minni framboðum er hinn nýi O-listi Borgarahreyfingarinnar með 3,0 prósent og L-listi Fullveldissinna með 1,5%. Báðir listar tapa dálitlu fylgi frá síðustu könnun. Frjálslyndir mælast með 1,4 prósenta fylgi en 0,9 prósent aðspurðra segjast ætla að kjósa eitthvað annað en framangreind framboð.

Vinsældir ríkisstjórnarinnar dvína frá fyrri viku. Um 60,6 prósent segjast nú styðja hana, en tæp 64 prósent sögðust styðja hana í síðustu viku. Mestan stuðning á ríkisstjórnin hjá konum og hjá þeim sem hafa háskólapróf, en minni stuðning hjá körlum og þeim sem hafa grunn- eða framhaldsskólapróf. Önnur hugsanleg stjórnarform, ef kosið væri nú, væru tveggja flokka stjórnir Sjálfstæðisflokks og annars vinstriflokkanna.

Eftir kjördæmum má sjá að stjórnarflokkarnir eru sterkir í Reykjavík. Samfylkingin stærst í Reykjavík suður, en Vinstri grænir stærstir norðan megin. Í Kraganum er Samfylkingin stærst og sömuleiðis í Norðvesturkjördæmi. Í Norðausturkjördæmi eru Vinstri-grænir stærstir en Sjálfstæðisflokkur heldur forystunni á Suðurlandi.

Gerð var netkönnun með tilviljunarúrtaki úr viðhorfahópi og símakönnun með tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Heildarúrtak var 2.451. Svarhlutfall var 61,1%.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is