Þingið ræðir skýrsla um beitingu hryðjaverkalaga á mánudag

stækka

mbl.is/Kristinn

Skýrsla bresku fjárlaganefndarinnar um beitingu hryðjuverkalaga gegn Íslandi og Landsbankanum verður rædd á Alþingi á mánudag. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag.

Í skýrslunni gagnrýnir fjárlaganefnd breska þingsins að hryðjuverkalögum hafi verið beitt gegn Landsbankanum og Íslandi í kjölfar hruns bankans í október síðastliðnum. Hvetur nefndin breska fjármálaráðuneytið til að fara yfir lögin og athuga hvort rétt yrði að beita þeim undir svipuðum kringumstæðum í framtíðinni. Kallar nefndin eftir breytingu á lögum svo að yfirvöld hafi önnur úrræði en að beita hryðjuverkalögum í sambærilegum málum.

Í skýrslunni eru núgildandi evrópskar reglur um rekstur fjármálafyrirtækja gagnrýndar. Er þar vísað til þess að vegna þess að Ísland sé í Evrópska efnahagssvæðinu hafi starfsleyfi, sem gefið sé út á Íslandi, gilt á svæðinu öllu. Þar með hafi íslensku bankarnir getað athafnað sig að vild í Bretlandi. Hins vegar sé skortur á samræmi í reglunum um hvaða eftirlitsstofnanir eigi að fylgjast með útibúum og dótturfyrirtækjum erlendra fjármálastofnana. Er sem dæmi nefnt að Singer and Friedlander, dótturfyrirtæki Kaupþings, hafi lotið eftirliti breskra yfirvalda og það hafi Heritable Bank, dótturfélag Landsbankans, sömuleiðis gert. Hins vegar hafi íslenska fjármálaeftirlitið átt að hafa eftirlit með starfsemi Icesave í Bretlandi. Kallar nefndin eftir endurskoðun á þessum reglum.

Stefnt er að ítarlegri umræðu um málið á Alþingi á mánudag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is