Fréttaskýring: Allir vilja verja velferðina
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
Ráðist verður í endurskoðun og breytingar á almannatryggingakerfinu eftir kosningar ef marka má stefnuyfirlýsingar og áherslur stjórnmálaflokkanna í velferðarmálum. Þannig hljóma að minnsta kosti loforð flestra flokka, án þess að þau séu yfirleitt útfærð í þaula.
Eftir bankahrunið hefur áhersla verið lögð á að verja grunnþjónustuna og bíður stjórnvalda ærið verkefni í þeim efnum; að tryggja fjármagn til að halda velferðarkerfinu gangandi og verja stöðu hinna verst stöddu.
Um miklar fjárhæðir er að ræða en samkvæmt gildandi fjárlögum eru greiðslur vegna trygginga, bóta og félagslegrar aðstoðar áætlaðar hið minnsta um 100 milljarðar króna, eða um fimmtungur allra fjárlaganna. Útgjöld til heilbrigðismála eru áætluð um 120 milljarðar króna.
Tillögur um breytingar á heilbrigðiskerfinu eru hins vegar ekki fyrirferðarmiklar en sem kunnugt er hefur sá málaflokkur verið mikið í umræðunni í vetur.
Í byrjun árs kynnti Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra umfangsmiklar tillögur til að taka á vandanum en arftaki hans, Ögmundur Jónasson, hefur meira og minna afturkallað eða breytt þeim áformum, um leið og boðuð hefur verið kjaraskerðing hjá heilbrigðisstarfsfólki. Skera þarf niður um sjö milljarða á þessu ári og enn meira á því næsta.
Í þessum stærsta útgjaldalið ríkisins blasir því við sársaukafullur niðurskurður en í fljótu bragði virðist Sjálfstæðisflokkurinn sá eini sem nefnir niðurskurð yfirleitt á nafn. Tekur flokkurinn fram að niðurskurðurinn megi ekki bitna á öryrkjum, lífeyrisþegum og hinum efnaminni og líkt og hjá flestum öðrum flokkum er talað um að tryggja beri jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustunni og heilsugæslunni í landinu.
Bæði Vinstri grænir og Samfylkingin nefna aukið samstarf við sveitarfélögin og að þau beri að efla í sinni grunnþjónustu í mennta- og velferðarmálum.
Borgarahreyfingin nefnir velferðarmál ekki sérstaklega á nafn í sinni stefnuyfirlýsingu þó að vafalítið hafi hreyfingin skoðun á þeim. L-listi fullveldissinna hefur sem kunnugt er dregið framboð sitt til baka.







