Þriðjungur myndi kjósa Samfylkingu

Jóhanna Sigurðardóttir á landsfundi Samfylkingarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir á landsfundi Samfylkingarinnar.

Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkur landsins, ef marka má könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins, sem kynnt var í fréttum Stöðvar 2. 33,4% sögðust kjósa flokkinn ef kosið væri í dag. 28,2% myndu kjósa Vinstri græn, 25% Sjálfstæðisflokk og 10% Framsóknarflokkinn.

Ef þetta yrðu niðurstöður kosninganna fengi Samfylkingin 22 menn á þing, VG fengi 19, Sjálfstæðisflokkur 16 og Framsóknarflokkur næði 6 mönnum á Alþingi.

Hringt var í 800 einstaklinga og tóku 77% afstöðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert