Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 13.4.2009
| 18:14
| Uppfært
14.4.2009
9:14
Svandís skorar á Guðlaug Þór og Vilhjálm
Borgarfulltrúi Vinstri grænna skorar á Guðlaug Þór Þórðarson og Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson að birta bókhald sitt vegna prófkjörs í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna árið 2006 og alþingiskosninga árið 2007. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
Fram kom í fréttum RÚV að Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi VG, fullyrði jafnframt að Guðlaugur Þór og Haukur Leósson hafi vitað um styrki FL Group til Sjálfstæðisflokksins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






