Ekki megi selja auðlindir

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/Ómar

Sjálfstæðisflokkurinn mun síðar í dag leggja fram breytingartillögu á Alþingi við frumvarp um stjórnskipunarlög, þar á meðal við ákvæði um auðlindir. Flokkurinn hefur bætt setningu við þá tillögu, sem lögð var fram á fundi sérnefndar um stjórnarskrármál í dag og samkvæmt henni má hvorki selja náttúruauðlindir, sem ekki eru í einkaeign, né láta þær varanlega af hendi.

Samkvæmt tillögum meirihluta nefndarinnar verður sérstöku ákvæði bætt við stjórnarskrána þar sem segir: Náttúruauðlindir í þjóðareign má ekki selja eða láta varanlega af hendi. 

Sjálfstæðismenn lögðu á fundi nefndarinnar í dag fram tillögu um að ákvæðið verði orðað þannig:

Íslenska ríkið fer með forsjá, vörslu og ráðstöfunarrétt þeirra náttúruauðlinda sem ekki eru í einkaeign og hefur eftirlit með nýtingu þeirra eftir því sem nánar er ákveðið í lögum.

Vísuðu sjálfstæðismenn m.a. til þess, að margir fræðimenn og fleiri hafi talið hugtakið þjóðareign vera óljóst og geti valdið túlkunarvanda.

Þingmenn Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar gagnrýndu þingmenn Sjálfstæðisflokks harðlega á Alþingi síðdegis fyrir þessa tillögu og sögðu þá vera að ganga erinda kvótaeigenda.

Tillaga sjálfstæðismanna hefur nú tekið breytingum er nú svohljóðandi: 

Íslenska ríkið fer með forsjá, vörslu og ráðstöfunarrétt þeirra náttúruauðlinda sem ekki eru í einkaeign og hefur eftirlit með nýtingu þeirra eftir því sem nánar er ákveðið í lögum. Slíkar auðlindir má hvorki selja né láta varanlega af hendi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert