Framboð P-lista úrskurðað ógilt í RS
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður úrskurðaði framboðslista P-lista, Lýðræðishreyfingarinnar ógildan. Skriflega yfirlýsingu vantaði frá mörgum frambjóðendum sem á listanum voru og var listinn því úrskurðaður ógildur.
Samkvæmt 32. grein kosningalaga skal hverjum framboðslista fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Umboðsmaður Lýðræðishreyfingarinnar hefur sólarhring til að skjóta úrskurði yfirkjörstjórnar til landskjörstjórnar sem úrskurðar endanlega í málinu.
Yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur úrskurðað alla sjö framboðslista í kjördæminu gilda. Lýðræðishreyfingin hafði fengið frest til klukkan eitt í dag til að skila tilskildum fjölda meðmælenda og var listum skilað í tíma.
Yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi úrskurðaði alla sjö framboðslistana gilda í gær og sama er að segja um yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis, þar eru sjö framboðslistar gildir.
Yfirkjörstjórnir í Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmi norður þinga nú um framboðslista Lýðræðishreyfingarinnar en nokkrir annmarkar eru á framboðslistum sem lagðir hafa verið fram. Niðurstöðu yfirkjörstjórna er að vænta um miðjan dag.






