Innlent
|
Kosningar
| Morgunblaðið
| 16.4.2009
| 5:30
| Uppfært
7:37
Styrkirnir ekki til umræðu
Marta Guðjónsdóttir var endurkjörin formaður Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, á aðalfundi ráðsins síðdegis í gær. Um 300 manns mættu á fundinn sem er óvenju góð mæting að sögn Mörtu.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpaði fundargesti og var honum vel tekið, segir Marta. „Ég tengi þessa góðu mætingu einmitt því að nýr formaður er að koma í fyrsta skipti fram á vettvangi Varðar og menn hafi viljað hlýða á hann,“ segir hún og vísar því á bug að styrkjamálið svokallaða hafi ýtt undir mætinguna. „Það minntist enginn á það á þessum fundi. Það var mikill einhugur og eindrægni og mikil jákvæðni meðal fundarmanna,“ segir hún.
Ekkert mótframboð var í formannsstólinn þar sem Marta hefur setið síðustu tvö ár en hún er fyrsta konan sem gegnir þessu embætti. Þá var kosin sjö manna stjórn félagsins úr hópi ellefu frambjóðenda að hennar sögn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






