Undrandi á frambjóðendum í NV-kjördæmi

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. stækka

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. SteinarH

„Það vakti mikla furðu þegar ég komst að því að ekki var fyrirhugað að halda opinn borgarafund hér á Akranesi fyrir einar mikilvægustu alþingiskosningar sem haldnar hafa verið hér síðustu áratugi. Vel á fimmta þúsund kjósendur í Norðvesturkjördæmi eru búsettir á Akranesi, eða sem nemur 21% allra kjósenda kjördæmisins,“ segir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness. Hann boðar til opins stjórnmálafundar með frambjóðendum á sunnudag.

Á þeirri forsendu hversu gríðarlega mikilvægar þessar kosningar eru fyrir heimilin og fyrirtækin í þessu landi ákvað Verkalýðsfélag Akraness að standa fyrir opnum borgarafundi á sunnudaginn kemur.

Vilhjálmur Birgisson segir verkalýðsfélagið vilja fá skýr svör frá frambjóðendum flokkanna um hver úrræði þeirra séu fyrir fólkið og fyrirtækin í þessu landi. um þessar mundir blæði íslenskum heimilum illilega vegna þess efnahagshruns sem hefur orðið í kjölfar bankahrunsins.

Fundurinn verður haldinn í Bíóhöllinni á Akranesi og hefst klukkan 15:00.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is