Fjármál flokkanna verði skoðuð

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, sagðist í Zetunni í mbl.is sjónvarpi í dag, vilja beita sér fyrir samkomulagi um að Ríkisendurskoðun fari yfir alla styrki til stjórnmálaflokka og meti hvort um hugsanleg hagsmunatengsl við fyrirtæki hafi verið að ræða.  Nefndi Jóhanna tímabilið 2000-2007.

„Það mega ekki vera svona grunsemdir uppi um að það séu hagsmunatengsl og óeðlileg afskipti af fyrirtækjum. Það verður allt að vera uppi á borði. Og ég mun skoða það í fullri alvöru að það verði allt uppi á borðum og að Ríkisendurskoðun leggi hlutlaust mat á það," sagði Jóhanna.

Agnes Bragadóttir spurði Jóhönnu hvort rétt væri, að Samfylkingin hefði árið 2006 fengið stórkostlega niðurfellingu skulda í fjármálastofnunum. Jóhanna sagðist ekkert hafa komið að fjármálum Samfylkingarinnar og hefði því ekki hugmynd um það en sagðist myndu sjá til þess að allt yrði upplýst sem hægt yrði og að allt gangi jafnt yfir alla flokkana hvað það varðar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is