Slettu skyri í kosningaskrifstofu

Skyri var slett í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar í Firðinum í dag.
Skyri var slett í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar í Firðinum í dag. mbl.is/Kristinn

Grímuklædd ungmenni réðust inn í kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og slettu lituðu skyri á húsbúnað og veggi. Fólkið var einnig með fiskúrgang í poka en Kristínu Sævarsdóttur, kosningastjóra, tókst að koma í veg fyrir að úrganginum væri kastað.

„Ég hljóp öskrandi á móti þeim þegar ég sá hvers kyns var og þau lögðu þá á flótta," sagði Kristín, sem segir að ungmennin hafi verið með grímur og hettur yfir höfðunum.

Kristín sagði þetta einkennilega baráttuaðferð í kosningabaráttu. Hún og annar starfsmaður skrifstofunnar, sem er í Firðinum í Hafnarfirði, voru þar ein: „Það var enginn þingmaður hér," sagði hún.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert