ESB blandar sér í íslensk stjórnmál

Embættismenn Evrópusambandsins eru að blanda sér með óeðlilegum hætti í stjórnmálin á Íslandi, að mati  Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins.  Þetta kom fram á fundi í Valhöll síðdegis þar sem Sjálfstæðismenn kynntu tillögur sínar í efnahagsmálum.

Percy Westerlund, sendiherra Evrópusambandsins gagnvart Noregi og Íslandi, hefur sagt það mikinn misskilning hjá Sjálfstæðisflokknum á Íslandi að halda að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geti komið því til leiðar eða haft milligöngu um að Íslendingar geti tekið upp evru.

Bjarni sagði að þessi mál væru í deiglunni og yrðu áfram í skoðun vegna þeirrar alþjóðlegu krísu sem væri uppi. Íslendingar ættu ekki að láta starfsmenn Evrópusambandsins segja sér fyrir með hvaða hætti þeir ætli að skoða og þróa valkosti þjóðarinnar í þessu efni. Það sæti furðu að sendiherra ESB gagnvart Íslandi og Noregi sé með þessum hætti að blanda sér í stjórnmálaumræðuna með þessum hætti. Það sé jafnan ekki hlutverk diplómatískra sendifulltrúa.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert