Órói seinkar vinnu

Tafir hafa orðið á greiðslu á öðrum hluta láns Alþjóða gjaldeyrissjóðsins til Íslands stækka

Tafir hafa orðið á greiðslu á öðrum hluta láns Alþjóða gjaldeyrissjóðsins til Íslands Reuters

Morgunblaðið Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is

Töf á annarri greiðslu láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) til Íslands, í tengslum við efnahagsáætlun sjóðsins og íslenskra stjórnvalda, hefur lítil sem engin áhrif á stöðu efnahagsmála hér á landi, segir Franek Rozwadowski, fulltrúi IMF á Íslandi. Töfin á láninu, miðað við upphaflegar áætlanir, er meðal annars tilkomin vegna tæknilegra ástæðna við greiningu á stöðu efnahagsmála hér á landi og einnig vegna óróa í stjórnmálum landsins, og þá helst stjórnarskiptanna fyrr á árinu.

„Vinnan hefur tekið lengri tíma en búist var við, meðal annars við endurskipulagningu bankakerfisins. Þá skipti einnig töluverðu miklu að það urðu pólitískar breytingar í landinu fyrr á árinu og á meðan þær gengu yfir lá vinnan nánast alveg niðri,“ sagði Rozwadowski í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.

Fyrsta borgun af láninu, sem í heild er áætlað að verði 2,1 milljarður dollara, var greidd í desember í fyrra og nam sú greiðsla um 830 milljónum dollara. Þeir peningar hafa ekki verið notaðir nema að litlu leyti og gerir áætlun IMF og íslenskra stjórnvalda ekki ráð fyrir því að grípa þurfi til þess að nota peninga frá sjóðnum beint til að greiða niður skuldir.

Áætlað var að 155 milljóna dollara greiðsla kæmi til viðbótar í byrjun mars á þessu ári, að loknu verðmati á eignum og skuldum gömlu og nýju bankanna. Vegna tafa við endurbyggingu bankakerfisins og almenns óróa hefur efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og IMF tafist um tvo og hálfan mánuð a.m.k. miðað við fyrstu áætlanir.

Rozwadowski segir að IMF og ný ríkisstjórn muni þurfa að ræða saman að loknum kosningum, sem fara fram 25. apríl nk., og vinna eftir áætlun til að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið. „Við verðum til taks strax að loknum kosningum. Um leið og ný ríkisstjórn kallar okkur til viðræðna þá geta þær hafist. Þær munu vafalítið standa yfir í nokkra daga og síðan mun vinnan halda áfram eftir venjubundnum leiðum [...] Það sem mestu máli skiptir er að halda áfram að vinna eftir áætlun til þess að ná þeim markmiðum sem hafa verið sett. Það skiptir ekki sköpum hvort lánagreiðslur skila sér nokkrum vikum eða mánuðum síðar en reiknað hafði verið með,“ sagði Rozwadowski.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is