Fullan hug á samstarfi áfram

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, oddvitar ríkisstjórnarflokkanna.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, oddvitar ríkisstjórnarflokkanna. mbl.is/Golli

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir VG halda ró sinni og ekki kippa sér upp við yfirlýsingar einstakra frambjóðenda Samfylkingarinnar um ESB-aðild í kosningabaráttunni.

Steingrímur sagði að sú afstaða VG væri alveg óbreytt að þeir hefðu fullan hug á að halda núverandi stjórnarsamstarfi áfram eftir kosningar ef þeir fengju til þess umboð í kosningunum. Forystumenn setjist niður eftir kosningar þar sem flokkarnir leggja stefnu sína á borðið án þess að setja úrslitaskilyrði.

Spurður um þau ummæli Björgvins G. Sigurðssonar að samstarf komi ekki til álita nema ESB-málið verði leyst, sagði Steingrímur að sér væri ekki kunnugt um að einstakir þingmenn hefðu fengið allsherjarumboð til að ákveða um hvað stjórnarsamstarf eigi að snúast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert