Þrjú fengu 2 milljónir frá Baugi

Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi Hrafnsson mbl.is

Sautján frambjóðendur fengu styrki frá Baugi árið 2006, skv. frétt á vef DV. Þar segir að þrír hafi fengið áberandi hæsta styrki, 2 milljónir hvert; Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Samfylkingu og Framsóknarmaðurinn Björn Ingi Hrafnsson.

Á vef DV kemur fram að eftirfaldir hafi fengið styrki frá Baugi, í stafrófsröð:

Arnbjörg Sveinsdóttir Sjálfstæðisflokki 250.000

Ármann Kr. Ólafsson Sjálfstæðisflokki 500.000

Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingu 200.000

Björgvin G. Sigurðsson Samfylkingu 300.000

Björn Ingi Hrafnsson Framsóknarflokki 2.000.000

Dögg Pálsdóttir Sjálfstæðisflokki 200.000

Guðfinna Bjarnadóttir Sjálfstæðisflokki 1.000.000

Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokki 2.000.000

Guðni Ágústsson Framsóknarflokki 300.000

Helgi Hjörvar Samfylkingu 900.000

Jóhanna Sigurðardóttir Samfylkingu 200.000

Katrín Júlíusdóttir Samfylkingu 500.000

Ragnheiður Elín Árnadóttir Sjálfstæðisflokki 250.000

Ragnheiður Ríkharðsdóttir Sjálfstæðisflokki 500.000

Róbert Marshall Samfylkingu 250.000

Sigríður Andersen Sjálfstæðisflokki 250.000

Steinn Valdís Óskarsdóttir Samfylkingu 2.000.000

Einnig kemur fram að Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, fékk styrk frá Baugi en ekki er staðfest hversu hár hann var.

DV segir listann ekki tæmandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert