Áherslan á ESB lýsir taugaveiklun

mbl.is/Ómar

„Ég er hugsi yfir því hve fast ýmsir talsmenn Samfylkingarinnar sækja ESB-aðildarumsókn. Ég er þó alveg rólegur og lít á þetta sem taugaveiklun. Við í VG höfum áhuga á að samstarfið við Samfylkingu haldi áfram og tel ágætar líkur á að við getum sameinast um afstöðu til málsins,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG í formannaþætti RÚV.

Umræðan um aðild að Evrópusambandinu og afstöðu flokkanna til aðildarumsóknar var fyrirferðarmikil í formannaþætti RÚV í kvöld. Formaður VG sagði sinn flokk hafa opnað á möguleikann á því, að undangengnu vönduðu ferli, að þjóðin kjósi um málið.

Formaður Samfylkingarinnar sagði nauðsynlegt að hefja aðildarviðræður strax.

„Öðruvísi getur þjóðin ekki tekið afstöðu. Það er forgangsmál hjá okkur í Samfylkingunni að fara í ESB,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir.

„Það er líklegt að VG og Samfylkingin nái saman um ESB. En það tekur tíma að komast þangað inn. Í millitíðinni þarf að grípa til aðgerða, það þarf að sinna þjóðinni, það er brýnt. Það gerum við ekki með ónýta krónu og 17% stýrivexti,“ sagði Þór Saari, talsmaður Borgarahreyfingarinnar.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sagði núverandi stjórnarflokka ekki geta náð saman um ESB nema annar hvor gæfi verulega eftir. Hann sagði ESB-aðild ekki þá töfralausn sem Samfylkingin boðaði. Auk þess væri mikil ágreiningur um málið meðal þjóðarinnar.

Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar gaf lítið fyrir umræðuna og sagði hana óábyrga. Fyrirfram mætti ekki hafna ESB-aðild.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins sögðust báðir fylgjandi aðildarviðræðum en undir ströngum skilyrðum. Frjálslyndir hafa sett 5 skilyrði sem lúta að yfirráðum auðlinda landsins og Framsókn vill hefja aðildarviðræður á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs. Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum.

mbl.is/Ómar
mbl.is/Ómar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert