„Áður verið í þessari stöðu“

Róbert Marshall er þriðji maður á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Róbert Marshall er þriðji maður á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

„Ég hef verið í þessari stellingu áður og varð ekki þingmaður þá, þannig að maður bíður rólegur eftir að fá fleiri tölur og betri yfirsýn,“ segir Róbert Marshall, þriðji maður á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Hann er nú staddur í Vestmannaeyjum og fylgist með tölunum streyma inn.

Samfylkingin bætir við sig mann í kjördæminu og er Róbert því inni sem stendur, sem sjöundi þingmaður Suðurkjördæmis. Í kosningunum árið 2007 leit á tímabili út fyrir að Róbert næði kjöri sem þingmaður en hann féll á endanum út. Þá munaði 56 atkvæðum að hann hefði orðið þingmaður. Hann var því sallarólegur þegar blaðamaður mbl.is sló á þráðinn til hans og sagðist bíða eftir endanlegum tölum áður en hann fangaði um of.

„Þetta er mjög ánægjulegt því við höfum unnið mikla vinnu í Suðurkjördæmi og hér í Eyjum. Þar hefur verið á brattann að sækja,“ segir Róbert.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is