Ávallt með fyrstu mönnum á kjörstað

Gylfi Eiðsson skilar atkvæðinu í kjörkassann á Eskifirði.
Gylfi Eiðsson skilar atkvæðinu í kjörkassann á Eskifirði. mbl.is/Helgi Garðarsson

Fyrsta atkvæðið datt í kjörkassann á kjörstað á Eskifirði þegar klukkan var tæpa eina mínútu gengin í tíu. Líkt og fyrr var það Gylfi Eiðsson, útgerðarmaður á Eskifirði, sem greiddi fyrstur atkvæði í bænum.

Gylfi var líka fyrstur til að greiða atkvæði í alþingiskosningunum árið 2007 en var þá heldur seinna á ferðinni eða klukkan 9:09.

Kjörstaðir hafa nú víðast verið opnaðir og stendur kjörfundur til klukkan 22 í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert