Illugi: Verra en ég vænti

Illugi, Sigurður Kári, Bjarni og Guðlaugur Þór eru allir inni á þingi miðað við nýjustu ... stækka

Illugi, Sigurður Kári, Bjarni og Guðlaugur Þór eru allir inni á þingi miðað við nýjustu tölur mbl.is/Kristinn

„Þetta er verra en ég hafði vænst,“ sagði Illugi Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að hafa séð fyrstu tölur úr talningu atkvæða í kosningum dagsins. Hann sagði að tölurnar væru vondar og þetta væru mikil vonbrigði. „Við töldum að við værum að vinna á síðustu dagana og að það væri að koma fram í umræðunni að ástæða væri til að hafa áhyggjur af því hversu sundurlyndir þessir flokkar virðast vera,“ sagði hann um stjórnarflokkana tvo, Samfylkingu og VG.

Illugi sagði helstu ástæðuna fyrir þessu fylgishruni vera þá hversu lengi flokkurinn hafi verið í stjórn og það efnahagshrun sem riðið hafi yfir þjóðina. Hann tók ekki undir að styrkjamálið svokallaða, styrkveitingar FL-Group og Landsbankans til flokksins, væru stærsta ástæðan fyrir þessu.

Illugi sagði hins vegar slæmt að margir þingmenn flokksins væru í hættu á að detta út af þingi. „Sjálfstæðisstefnan og þingmenn Sjálfstæðisflokksins geta lagt mikið á vogarskálarnar til að vinna landinu heilt,“ sagði Illugi og kvað að það yrði þjóðinni gott ef fleiri þeirra næðu inn áður en yfir lýkur.

Illugi Gunnarsson.

Illugi Gunnarsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is