Lánsfylgi Samfylkingarinnar
„Ég held nú að þessi stjórn ætli að reyna að vinna saman áfram en það gæti orðið erfitt því að maður hefur grun um það að stór hluti af þessu fylgi hjá Samfylkingunni sé hálfgert lánsfylgi hörðustu Evrópusinnanna. Þeir yrðu nú varla sáttir ef Samfylkingin færi að gefa mikið eftir í þeim efnum,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Hann sagði margt koma á óvart þegar fyrstu tölur lágu fyrir í öllum kjördæmum. Fylgi Framsóknarflokksins ætti án efa eftir að hjarna við þegar atkvæði úr hinum dreifðari byggðum bættust við.
„En ég átti ekki von á því að Samfylking fengi alveg svona mikið og Sjálfstæðisflokkurinn svona lítið og ég tala nú ekki um Vinstri græn. Svo er náttúrulega ótrúlega góður árangur hjá Borgarahreyfingunni. Þetta er á margan hátt óvænt og áhugavert.“






