Guðbjartur: Bjartsýnn á áframhaldandi samstarf

Guðbjartur Hannesson

Guðbjartur Hannesson

Guðbjartur Hannesson, efsti maður á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, segist bjartsýnn a að samkomulag náist um áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs.

„Við erum mjög ánægð með það að ríkisstjórnarflokkarnir nái meirihluta og lítum á það sem viðurkenningu á þeim áherslum sem við höfum lagt í samstarfi okkar,” sagði hann er blaðamaður mbl.is ræddi við hann í nótt.

Guðbjartur sagði að þrátt fyrir að Samfylkingin hafi verið stærsti flokkur kjördæmisins frá því fyrstu tölur voru birtar og fram til klukkan hálf fjögur í nótt þyrði hann lítið að segja fyrr en síðustu tölur hefðu skilað sér. Tölur í kjöldæminu virtust birtar eftir svæðum og reynslan frá síðustu kosningum sýndi að enn gæti margt gerst.

Þetta hafi þó verið markmið Samfylkingarinnar og hann vonaðist til áherslur flokksins í sjávarútvegsmálum og Evrópumálum hafi fundið samhljóm meðal kjósenda í kjördæminu.

Spurður um ólíka afstöðu stjórnarflokkanna til Evrópusambandsins sagðist Guðbjartur ekki telja að hún muni standa í vegi fyrir áframhaldandi samstarfi þeirra.

„Við höfum metið það þannig að þjóðin eigi að ráða og ég hef ekki skilið það þannig að Vinsti grænir setji sig upp á móti því. Menn geta svo auðvitað verið ósammála þegar að atkvæðagreiðslu kemur,” sagði hann.

„Við viljum skilgreina samningsmarkmið og láta síðan á þetta reyna. Við lítum svo á að skilaboðin í þessum kosningum séu í samræmi við það. Það er að ekki sé hægt að halda áfram að tala um þetta án þess að láta á það reyna.”   
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is