Gunnar Bragi ánægður með gengi Framsóknarflokksins

Gunnar Bragi Sveinsson skipar efsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. stækka

Gunnar Bragi Sveinsson skipar efsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Gunnar Bragi Sveinsson, sem skipar efsta sætið á lista Framsóknarflokksins í  Norðvestur-kjördæmi, var ánægður með gengi Framsóknarflokksins í kjördæminu en flokkurinn bætir við sig einum manni miðað við þær tölur sem birst hafa.

Gunnar Bragi er því væntanlega nýr þingmaður á Alþingi eftir þessar kosningar líkt og Guðmundur Steingrímsson sem skipar annað sætið á lista Framsóknarflokksins í NV-kjördæmi. 

Að sögn Gunnars Braga er mikil stemming á kosningavökum flokksins í kjördæminu en flokksmenn hafa komið víða saman til þess að fylgjast með tölum um leið og þær berast. Gunnar Bragi er staddur á kosningavökunni á Sauðárkróki og segir að ekki verði farið að sofa fyrr en síðasta atkvæði hefur verið talið enda mikil gleði meðal framsóknarmanna í Norðvestur-kjördæmi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is