Guðjón: Dreg mig ekki undan ábyrgð
eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is
Ekki er útilokað að Frjálslyndi flokkurinn boði til nýs landsþings fyrr en lög flokksins kveða á um, sem er á tveggja ára fresti. Þetta segir Hanna Birna Jóhannsdóttir, ritari flokksins.
„Það er miðstjórnarfundur næstkomandi fimmtudag,“ segir hún. Hann sitji níu miðstjórnarmenn, varamenn, fulltrúar kjördæmanna, framkvæmdastjóri og formaður fjármálaráðs. „Farið verður yfir stöðu flokksins og hvað við gerum í framhaldinu,“ segir hún, en flokkurinn missti alla þingmenn sína af Alþingi í kosningunum, hlaut 2,2% fylgi á landsvísu.
Magnús Þór Hafsteinsson sem bauð sig fram gegn Guðjóni Arnari Kristjánssyni formanni á síðasta landsþingi í Stykkishólmi, ritar á blogg sitt að aldrei hafi verið brýnna að boða til landsþings en nú. „Nú liggur fyrir að Frjálslyndi flokkurinn hefur beðið algert skipbrot í alþingiskosningum með 2,2% fylgi á landsvísu. [...] Það þarf að velja að nýju í stjórnir Frjálslynda flokksins svo fólk geti sem fyrst með endurnýjuðu umboði hafið endurreisn hans sem stjórnmálahreyfingar.“
Guðjón segir miðstjórnina eina geta ákveðið hvort boðað verði til nýs landsþings og hvenær það þá yrði. Hann tjáir sig ekki um að hvort honum finnist það skynsamlegt. En hefur áhuga á að starfa áfram fyrir flokkinn.
„Ég var kosinn formaður fyrir stuttu og ég dreg mig ekki undan ábyrgð ef fólk vill að ég vinni störfin,“ segir hann.
Guðjón segir að flokksmenn þurfi nú að skoða málin með algerlega nýju hugarfari. Meðal annars starfsemi flokksins, fjármál og allt hans umhverfi.
„Flokkurinn er dottinn út af þingi og er ekki í sömu stöðu og hann var. Hvorki fjármálalega né sem talsmaður á opinberum vettvangi á þinginu. Það er þó ekki það sama og að menn verði mállausir eða missi niður pennann. Nú gefst meira að segja meiri tími til þess,“ segir formaðurinn, Guðjón A. Kristjánsson.







