Innlent
|
Kosningar
| Morgunblaðið
| 28.4.2009
| 5:30
| Uppfært
8:28
Stýrihópar um fjóra málaflokka
Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hyggst skipa fjóra starfshópa um mikilvæga málaflokka.
Varaformenn flokkanna, Dagur B. Eggertsson og Katrín Jakobsdóttir, munu stýra starfshópi um Evrópumál þar sem þess verður freistað að ná fram sameiginlegri stefnu þrátt fyrir ólíka sýn flokkanna. Þá verður einnig rætt um leiðir í þremur öðrum hópum er varða ríkisfjármál, atvinnu- og efnahagsmál og breytingar á stjórnarráðinu.
„Það er engin tímapressa á þessari vinnu en auðvitað skiptir miklu máli að halda vel á spöðunum og ljúka málum á eins skömmum tíma og kostur er,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon að loknum fundi í Norræna húsinu með Jóhönnu Sigurðardóttur, formanni Samfylkingarinnar, varaformönnum flokkanna og aðstoðarmönnum Steingríms og Jóhönnu. Þeim Hrannari B. Arnarssyni og Hugin Frey Þorsteinssyni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






